Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. maí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brjáluð út í lýsanda sem sagði mark Icardi „gagnslaust"
Icardi og Wanda Nara.
Icardi og Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Wanda Nara, eiginkona og umboðsmaður, Mauro Icardi, sóknarmanns Inter, brjálaðist út Daniele Adani, sem lýsti leik Inter og Napoli fyrir Sky Sports á Ítalíu í gær.

Icardi kom inn á sem varamaður og minnkaði muninn í 4-1 með marki úr vítaspyrnu.

Adani sagði í útsendingu Sky Sports á Ítalíu að markið hefði verið gagnslaust (e. useless) og litlu sem engu breytt. Wanda tók ekki vel í þessi ummæli.

„Það sem er gagnslaust er píkan á systur þinni," öskraði Wanda á sjónvarp, í myndbandi sem hún sjálf deildi á samfélagsmiðlum. Hún eyddi síðar myndbandinu.

Wanda, sem er umdeild, sagði nýlega að Icardi yrði áfram hjá Inter.



Athugasemdir
banner
banner
banner