lau 21. maí 2022 15:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið KR og Leiknis: Sex breytingar samtals
Stefan Ljubicic byrjar
Stefan Ljubicic byrjar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR og Leiknir takast á í sjöundu umferð Bestu deildarinnar kl 16 á Meistaravöllum. Byrjunarlið liðanna eru komin í hús.


Lestu um leikinn: KR 1 -  1 Leiknir R.

KR sigraði Keflavík 1-0 í síðustu umferð en Rúnar Kristinsson gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu. Þorsteinn Már Ragnarsson, Stefan Ljubicic, Ægir Jarl Jónasson og Aron Kristófer Lárusson koma allir inn fyrir Stefán Árna Geirsson, Kjartan Henry Finnbogason, Pálma Rafn Pálmarsson og Kristinn Jónsson.

Þeir eru allir á bekknum í dag nema Kristinn.

Sigurður Höskuldsson þjálfari Leiknis gerir tvær breytingar á sínu liði frá 2-1 tapinu gegn Fram í síðustu umferð Daði Bærings Halldórsson og Mikkel Jakobsen detta út og Árni Elvar Árnason og Birgir Baldvinsson koma inn.

KR:
1 Beitir Ólafsson
4 Hallur Hansson
6 Grétar Snær Gunnarsson
7 Finnur Tómas Pálmason
8 Þorsteinn Már Ragnarsson
11 Kennie Knak Chopart
14 Ægir Jarl Jónasson
16 Theodór Elmar Bjarnason
17 Stefan Alexander Ljubicic
18 Aron Kristófer Lárusson
23 Atli Sigurjónsson


Leiknir:
22 Viktor Freyr Sigurðsson
7 Maciej Makuszewski
8 Árni Elvar Árnason
9 Mikkel Dahl
11 Brynjar Hlöðversson
15 Birgir Baldvinsson
17 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18 Henrik Emil Hahne Berger
21 Róbert Hauksson
23 Dagur Austmann Hilmarsson
28 Arnór Ingi Kristinsson


Athugasemdir
banner
banner