Fotbolti.net
21.05.26 - 17:09
Viktor Ingi Valgarðsson
Kjarninn

Byrjunarlið ÍA og ÍBV: Glænýr markvörður - Fjórar breytingar og menn utan hóps

Glænýr markvörður ÍA, Jón Sölvi Símonarson

Glænýr markvörður ÍA, Jón Sölvi Símonarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag klukkan 18:00 hefst 8.umferð Bestu deildarinnar með leik ÍA og ÍBV. Leikurinn fer að sjálfsögðu á heimavelli ÍA sem er ELKEM völlurinn á Akranesi.

Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 ÍBV

Það ætti ekki að koma neinum á óvænt með markvarðarmál ÍA. Lárus Orri og hans menn fengu Jón Sölva til liðsins frá Breiðablik eftir að undanþága var samþykkt í dag útaf ristarbroti Árna Marinós í síðasta leik ÍA. Fyrsti leikur Jón Sölva í Bestu Deildinni staðfestur með opinberun byrjunarliðsins í dag. Annars er eina breytingin frá síðasta leik ÍA sú að Gísli Laxdal kemur í byrjunarliðið fyrir Jón Gísla Eyland sem er í banni.

Alexander Linta þjálfari ÍBV gerir síðan 4 á liðinu sínu eftir tapið í Eyjum síðustu helgi gegn Víking R. Liam Daði, Eiður Atli, Róbert Elís og Alex Freyr Hilmarsson byrja í dag. Alex Freyr kom inná í síðasta leik en hann er að stiga upp úr meiðslum. Þess má geta að Filip Stuparevic og Milan Jezdemirovic sem byrjuðu báðir í síðasta leik eru utan hóps.

Byrjunarlið ÍA

Jón Sölvi Símonarson, Baldvin Þór Berndsen, Haukur Andri Haraldsson, Guðmundur Þórarinsson, Viktor Jónsson, Gísli Eyjólfsson, Erik Tobias Tangen Sandberg, Gísli Laxdal Unnarsson, Böðvar Böðvarsson, Ómar Björn Stefánsson, Markús Páll Ellertsson

Byrjunarlið ÍBV

Ari i Haraldstovu Petersen, Sigurður Arnar Magnússon, Mattias Edeland, Milan Tomic, Sesar Örn Harðarson, Liam Daði Jeffs, Eiður Atli Rúnarsson, Alex Freyr Hilmarsson (fyrirliði), Felix Örn Friðriksson, Róbert Elís Hlynsson, Vicente Rafael Valor Martínez

Alex Freyr Hilmarsson byrjar í dag

Alex Freyr Hilmarsson byrjar í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.