Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
banner
   fim 21. maí 2026 17:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Siggi Höskulds: Tókum góðan fund í gær
'Fundurinn var góður ég held að hann hafi skilað sínu'
'Fundurinn var góður ég held að hann hafi skilað sínu'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur leikið vel það sem af er tímabli.
Keflavík hefur leikið vel það sem af er tímabli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vonast til að sjá fleiri stuðningsmenn Þórs í stúkunni.
Vonast til að sjá fleiri stuðningsmenn Þórs í stúkunni.
Mynd: Ármann Hinrik
Þór náði í sex stig úr fyrstu þremur leikjunum en hefur tapað síðustu fjórum.
Þór náði í sex stig úr fyrstu þremur leikjunum en hefur tapað síðustu fjórum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Á morgun, klukkan 18:00, hefst nýliðaslagur Keflavíkur og Þórs í Bestu deildinni. Leikurinn fer fram á HS-Orku vellinum í Keflavík.

Keflavík kemur inn í leikinn í góðum gír, liðið er með átta stig sem hafa komið í síðustu fimm leikjum liðsins. Þór er með tveimur stigum minna eftir fjóra tapleiki í röð. Fótbolti.net ræddi við þjálfara liðanna í aðdraganda leiksins og var fyrst rætt við Sigurð Heiðar Höskuldsson sem er þjálfari Þórs.

Svekktur með síðasta leik
„Það er svo sem ekkert rosalega mikið öðruvísi að koma inn í leikinn eftir fjóra tapleiki, nema fyrir þær sakir að síðasti leikur var að megninu til það dapur. Það gerir það að verkum að hin töpin á undan stækka. Blikatapið var ekki 4-0 tap, við vorum að mörgu leyti ánægðir með okkur í þeim leik, við vorum ánægðir með KA leikinn fyrir utan eitt og eitt augnablik sem gerðu það að verkum að við töpuðum leiknum - það var leikur sem við áttum að vinna að okkar mati."

„Svo kemur Víkingsleikurinn, það stóra tap stækkaði hina leikina og svo kom tapið gegn ÍA, annar heimaleikur þar sem við sáum alvöru tækifæri á að vinna. Það svíður mest og hugarfarið var ekki nægilega gott í fyrri hálfleik í síðasta leik, það er eitthvað sem er fyrir mér auðvelt að bæta, sérstaklega hjá þessum hóp. Ég hef ekki áhyggjur af því að við mætum ekki vel gíraðir í leikinn á morgun,"
segir Siggi.

Varstu svekktur með að þínir menn fundu ekki lyktina af blóði, Skagamenn hafa verið í brekku og fóru í framlengingu í bikarnum í leiknum á undan?

„100%, þegar ég horfði á þetta aftur þá fannst mér að Skagamenn hefðu ekki spilað vel í leiknum. Þeir voru fínir, voru góðir í því sem við vorum lélegir í sem var baráttan um fyrsta og annan boltann. Þeir sköpuðu sér engin færi úr opnum leik nema þegar við færðum þeim á silfurfati einhver upphlaup. Það voru vonbrigði að við komum ekki beittari til leiks, Skagamenn voru þreyttir eftir sinn leik, við fengum ferska menn inn á og ég hefði viljað sjá okkur graðari, ákveðnari og fara og sækja sigurinn - ekki bara að jafna leikinn. Mér fannst tækifæri til að sækja sigur með réttu hugarfari, þess vegna var ég svekktur."

Fóru vel yfir leikinn gegn ÍA
Hvernig er að gíra menn upp í leikinn gegn Keflavík?

„Við tókum góðan fund í gær, fórum mjög vandlega yfir leikinn gegn ÍA á vídeói, sannmæltumst allir saman um hvað þyrfti að bæta. Það hefur oft verið gert, fundurinn var góður ég held að hann hafi skilað sínu."

Rétt hugarfar og ákefð það sem þarf
Hvernig nær Þór í góð úrslit á móti Keflavík?

„Það fyrsta sem þarf að gerast er að menn mæti á svæðið með rétt hugarfar. Eins og allir vita þá hefur Keflavík átt fína byrjun á tímabilinu, þeir eru með tveimur stigum meira en við í deildinni og eru með öflugan heimavöll sem við höfum átt í erfiðleikum með að koma á síðustu tvö ár. Við gerðum jafntefli í fyrra og töpuðum þar á undan. Við förum og spilum okkar leik, við þurfum að laga það sem fór úrskeiðis í síðasta leik. Það var hugarfarslegs eðlis, vantaði upp á ákefðina sem er alls ekki það sem við viljum standa fyrir og alls ekki það sem mun koma okkur á þann stað sem okkur langar að vera á."

Spilamennska Keflavíkur kemur ekki á óvart
Hefur spilamennska Keflavík komið þér á óvart miðað við það sem þú sást í fyrra?

„Nei, alls ekki. Keflavík er með mjög góðan hóp og eru óhræddir. Þeir þora að spila sinn leik, vita nákvæmlega hvað þeir standa fyrir og spilamennskan kemur mér ekki á óvart. Þeir eru taktískt öflugir, eru með fína reynslu í liðinu, þekkja leikstílinn sinn í húð og hár. Þetta er vel smurð vél sem tikkar og það hjálpar mikið."

Vonast til að sjá fleiri Þórsara í stúkunni
Siggi segir að þeir sem hafi verið í hópnum í undanförnum leikjum séu allir klárir í slaginn. Að lokum hvetur hann Þórsara til að mæta á völlinn.

„Ég vona að við fáum aftur fólk á völlinn í útileik. Ég vonast til að það mæti fleiri á morgun til Keflavíkur og styðji okkur á föstudagskvöldi," segir Siggi að lokum.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 7 6 1 0 21 - 4 +17 19
2.    KR 7 6 1 0 27 - 13 +14 19
3.    Fram 7 4 2 1 20 - 13 +7 14
4.    Breiðablik 7 3 3 1 13 - 8 +5 12
5.    Valur 7 4 0 3 16 - 14 +2 12
6.    KA 7 3 1 3 9 - 9 0 10
7.    Keflavík 7 2 2 3 10 - 12 -2 8
8.    ÍA 7 2 2 3 9 - 14 -5 8
9.    Stjarnan 7 2 1 4 14 - 17 -3 7
10.    Þór 7 2 0 5 6 - 19 -13 6
11.    FH 7 0 2 5 12 - 20 -8 2
12.    ÍBV 7 0 1 6 6 - 20 -14 1
Slapp
banner
banner