21.06.12 - 13:18
Magnús Már Einarsson
Robert Green til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Markvörðurinn reyndi Robert Green mun ganga í raðir QPR þegar samningur hans við West Ham rennur út í lok mánaðarins.
Þessi 32 ára gamli leikmaður mun skrifa undir tveggja ára samning við QPR en Green er sem stendur með enska landsliðinu á EM.

,,Þetta eru spennandi tímar fyrir alla hjá QPR og ég get ekki beðið eftir að byrja að spila,\" sagði Green.
Green hefur leikið 241 leik með West Ham frá því að hann kom til félagsins frá Norwich árið 2006.
Green er þriðji leikmaðurinn sem QPR fær í vikunni en Mark Hughes hefur einnig krækt í reynsluboltana Andy Johnson og Ryan Nelsen.

Heimild: BBC