21.06.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Mido til Barnsley (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Egypski framherjinn Mido hefur gengið til liðs við Barnsley í ensku Championship deildinni.
Mido yfirgaf Zamalek í heimalandi sínu á dögunum og hann gengur núna frítt í raðir Barnsley.

Hinn 29 ára gamli Mido skrifaði undir eins árs samning með möguleika á árs framlengingu.
Mido hefur átt skrautlegan feril en hann hefur spilað með tíu félögum og oft ekki verið í nógu góðu standi.
Á Englandi hefur Mido leikið með Tottenham, Middlesbrough, Wigan og West Ham en hann hefur einnig leikið með félögum eins og Ajax, Celta Vigo, Marseille og Roma.

Heimild: Sky