21.06.12 - 21:00
Magnús Már Einarsson
Keown, Parlour og Le Saux til Wembley FC (Staðfest)

Martin Keown mun taka fram skóna.

Mynd: Getty Images

Martin Keown mun taka fram skóna.

Mynd: Getty Images
Ray Parlour, Martin Keown, Graeme Le Saux, Claudio Caniggia og Brian McBride hafa allir samþykkt að ganga til liðs við Wembley FC sem leikur í níundu efstu deild á Englandi.
Leikmennirnir ætla allir að taka fram takkaskóna og leika með Wembley FC í enska bikarnum á næsta tímabili.

Enska félagið hefur einnig ráðið David Seaman sem markmannsþjálfara og þá tók Terry Venables fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga við sem tæknilegur ráðgjafi hjá Wembley FC á dögunum.
Budweiser er nýr styrktaraðili Wembley FC og fyrirtækið mun sjá um kostnaðinn á bakvið komu leikmannanna.
Parlour og Keown léku báðir í yfir áratug með Arsenal á sínum tíma á meðan Le Saux lék lengi með Chelsea.
Caniggia lék með tíu félögum á skrautlegum ferli sínum á meðan McBride verður helst minnst fyrir dvöl sína hjá Fulham á Englnaid.