Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir er farinn frá Lyon en hún kom til félagsins árið 2020. Hún mun ekki spila áfram í Frakklandi.
Hún sneri til baka úr barneignarfríi fyrr á þessu ári og er í viðræðum við nýtt félag.
Hún sneri til baka úr barneignarfríi fyrr á þessu ári og er í viðræðum við nýtt félag.
„Ég var alls ekki sátt við þann fjölda mínútna sem ég fékk inn á vellinum í lok tímabilsins. Ég var meira en tilbúin að spila fleiri mínútur," sagði Sara.
„Það er orðið ljóst að ég fer frá Frakklandi, það er annað í bígerð og við verðum bara að sjá hvað kemur á næstunni."
„Jáááá, þetta er aðeins að nálgast," sagði Sara en sagðist því miður ekki geta gefið neinar vísbendingur um næsta áfangastað. „Þú verður bara að bíða og sjá," sagði landsliðskonan að lokum.
Athugasemdir