21.07.03 - 00:00
Lequi til Atletico Madrid. (Staðfest)
Atletico Madrid skrifaði nú rétt eftir miðnætti undir samning við Matias Lequi, en hann kemur frá argentínska liðinu River Plate. Matias þessi spilar yfirleitt sem miðvörður en getur víst líka leikið sem vinstri bakvörður.
Matias hafði látið hafa það eftir sér nokkuð lengi að hann væri á leið frá Buenos Aires og sagðist vera á leið til spænsks klúbb sem nú kemur í ljós að er Atletico. Þó kaupverðið sé ekki gefið upp þá er talið að megnið af því fari í að greiða skuldi við Rosario Central en River skuldar enn 1,2 milljónir dollara (750 þúsund pund) frá því að leikmaðurinn kom til höfuðborgarinnar.
