21.07.12 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Mauro Camoranesi til Racing Club (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski snillingurinn Mauro Camoranesi hefur samið við argentíska félagið Racing Club, en þetta var staðfest í gær.
Camoranesi, sem er 35 ára gamall kemur til Racing Club frá argentíska liðinu Lanus, en hann hefur leikið þar undanfarið ár.
Leikmaðurinn gerði garðinn frægan hjá Juventus frá árunum 2002 til 2010, en þá yfirgaf hann ítalska félagið og gekk til liðs við Stuttgart í Þýskalandi áður en hann samdi við Lanus í Argentínu.
Mauro er fæddur í Argentínu, en ákvað að taka upp ítalska ríkisborgararéttinn og sá ekki eftir því, enda var hann partur af liðinu sem vann HM í Þýskalandi árið 2006.

Heimild: FIFA