Fotbolti.net
21.07.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Fernando Gago til Valencia (Staðfest)

Fernando Gago til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Valencia hefur keypt Fernando Gago, leikmann Real Madrid. Kaupverðið nemur 3,5 milljónum evra.
Þessi 26 ára miðjumaður hefur fallið aftarlega í goggunarröðinni hjá Real Madrid og var lánaður til Roma á Ítalíu á síðustu leiktíð.

Það var búist við því að Argentínumaðurinn myndi yfirgefa herbúðir Real Madrid í sumar og spænski fjölmiðlar segja að félagið hafi samþykkt fimm milljóna evra tilboði frá Valencia.

Gago skrifaði undir fjögurra ára samning við Valencia sem mun spila í Meistaradeild Evrópu á komandi keppnistímabili eftir að hafa endað í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.