Spal komst upp í Serie A í fyrsta sinn í sögunni í fyrra og náði að halda sér uppi þökk sé þremur sigrum í síðustu fjórum umferðunum.
Liðið vill helst ekki vera svo nálægt falli aftur og var að styrkja sig með tveimur öflugum leikmönnum rétt í þessu.
Annar þeirra er Johan Djourou, svissneskur varnarmaður sem hóf ferilinn hjá Arsenal og lék 140 leiki fyrir félagið.
Hann er 31 árs og hefur leikið fyrir Birmingham, Hannover, Hamburger og var hjá Antalyaspor í tyrkneska boltanum á síðustu leiktíð.
Hinn er Andrea Petagna, 23 ára sóknarmaður sem hefur spilað 75 leiki á tveimur árum hjá Atalanta. Hann á einnig þrjá Serie A leiki að baki fyrir Milan og þrjá fyrir Sampdoria.
Djourou kemur frítt og skrifar undir eins árs samning, sem verður framlengdur ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Petagna kemur á láni með kaupskyldu, ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Atalanta ákvað að losa sig við Petagna eftir komu Duvan Zapata frá Sampdoria. Petagna mun berjast við Alberto Paloschi og Sergio Floccari um byrjunarliðssæti í fremstu víglínu, við hlið Mirco Antenucci.
Athugasemdir