Sassuolo var að staðfesta komu sóknartengiliðsins Jeremie Boga frá Chelsea.
Boga er 21 árs og hefur gert góða hluti á láni hjá Rennes, Granada og Birmingham undanfarin tímabil.
Hann fékk mikinn spilatíma öll tímabilin og nú fær hann tækifæri til að sanna sig í ítölsku deildinni.
Sassuolo greiðir 4 milljónir evra fyrir Boga, sem á 12 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka og einn A-landsleik fyrir Fílabeinsströndina.
Chelsea hefur ekki misst trúna á að Boga verði stórstjarna og var ákvæði sett í kaupsamninginn sem segir enska félagið geta keypt Boga aftur til sín fyrir óuppgefna upphæð.
Athugasemdir