Fotbolti.net
21.07.19 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Klopp: Fólk hélt að ég væri fullur en Alisson kláraði allt

Klopp: Fólk hélt að ég væri fullur en Alisson kláraði allt
Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist ekki hafa verið fullur þegar Liverpool fagnaði sigri sínum í Meistaradeildinni.

Liverpool vann 2-0 sigur á Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og fagnaði titlinum heima í Liverpool með því að keyra um í opinni rútu.
Liverpool-liðið fagnaði vel, en Klopp segist aðeins hafa fengið sér tvo bjóra þar sem einn Brasilíumaðurinn í liðinu hafi klárað allar byrgðirnar.

„Fólk hélt að ég væri fullur í rútunni. Ég var það ekki, ég fékk mér aðeins tvo bjóra. Ég leit bara út fyrir að vera fullur. Allir bjórarnir sem ég átti að fá, Ali (Alisson) drakk þá," sagði Klopp hress við fjölmiðlamenn.

Liverpool er á fullu í undirbúningstímabili sínu fyrir næstu leiktíð. Liðið tapaði gegn Dortmund í síðasta æfingaleik sínum. Næsti æfingaleikur er gegn Sevilla í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.