Fotbolti.net
21.07.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Evrópa í dag - Ísraelar í Fossvogi

Evrópa í dag - Ísraelar í Fossvogi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Forkeppni Meistaradeildarinnar er í fullu fjöri þessa dagana og eiga Íslandsmeistarar Víkings R. afar erfiðan heimaleik gegn Ísraelsmeisturum Hapoel Be'er Sheva í kvöld.
Víkingur sló ungversku meistara Györ úr leik í fyrstu umferð forkeppninnar og verður gríðarlega spennandi að sjá hvernig einu allra sterkasta félagsliði Íslandssögunnar vegnar gegn Hapoel.

Leikurinn á að hefjast klukkan 19:00 en það ríkir einhver óvissa fyrir upphafsflautið vegna fyrirhugaðra pólitískra mótmæla gegn Ísrael við Víkingsvöll.

Það mæta nokkur skemmtileg lið til leiks í forkeppni Meistaradeildarinnar í dag og í kvöld. Fenerbahce, Dinamo Zagreb og Rauða stjarnan eru þar á meðal en einnig má finna þrjú Íslendingalið.

Mikael Neville Anderson og félagar í Århus spila við Gísla Gottskálk Þórðarson og liðsfélaga hans í liði Lech Poznan áður en Hearts mætir til leiks. Tómas Bent Magnússon gæti byrjað leikinn gegn Sturm Graz frá Austurríki.

Það eru einnig þrír leikir á dagskrá í forkeppni Sambandsdeildarinnar, þar sem Íslendingalið Göteborg tekur á móti Levadia frá Eistlandi og er búist við sigri heimamanna. Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson spila með Gautaborg.

Meistaradeildin
16:00 Ararat-Armenia - Shamrock Rovers
16:00 Iberia 1999 - Slovan Bratislava
16:00 Mjallby - Lincoln Red Imps
16:00 Sabah FK - KuPS
17:00 AGF Aarhus - Lech Poznan
18:00 Fenerbahce - Gornik Zabrze
18:00 Thun - Dinamo Zagreb
18:30 Sturm Graz - Hearts
18:45 KÍ Klaksvík - Kauno Zalgiris
19:00 Larne FC - Rauða stjarnan
19:00 Víkingur R. - Hapoel Beer Sheva

Sambandsdeildin
17:00 Göteborg - Levadia T
17:30 Floriana FC - Drita FC
18:15 Atert Bissen - Györ
Evrópa í dag - Ísraelar í Fossvogi
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Ísraelar í Fossvogi
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Ísraelar í Fossvogi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.