Fotbolti.net
21.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Albert fær tvo nýja samherja fyrir 45 milljónir (Staðfest)

Albert fær tvo nýja samherja fyrir 45 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson er búinn að fá tvo nýja liðsfélaga til viðbótar í sumarglugganum og hefur Fiorentina því bætt fjórum nýjum leikmönnum við hópinn hjá sér það sem af er sumars.
Félagið byrjaði á að krækja í Radu Dragusin og Arthur Atta og hefur fylgt því eftir með kaupum á tveimur bráðefnilegum leikmönnum sem kosta rúmlega 45 milljónir evra samanlagt.

Christ Inao Oulaï kostar 30 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum og kemur úr röðum Trabzonspor í Tyrklandi. Oulai er tvítugur miðjumaður sem vann sér inn byrjunarliðssæti í sterku landsliði Fílabeinsstrandarinnar á HM í sumar.

Hann var einnig orðaður við Manchester United og Everton í sumar, en Fiorentina sýndi meiri áhuga.

Brasilíski miðvörðurinn Viery, sem getur einnig spilað sem vinstri bakvörður, er 21 árs gamall og kostar í heildina 17 milljónir evra með aukagreiðslum. Hann kemur úr röðum Gremio í heimalandinu þar sem hann vann sér inn byrjunarliðssæti fyrr á árinu og hefur staðið sig gríðarlega vel.

Viery gerir fimm ára samning við Fiorentina sem er staðráðið í að eiga ekki annað vonbrigðatímabil eins og á síðustu leiktíð.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Albert fær tvo nýja samherja fyrir 45 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.