Nýliðarnir vilja Bailey og Targett

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hull City eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og þurfa að gera stórar breytingar á leikmannahópi sínum til að eiga möguleika á að forðast fall.

TENGT EFNI
Nýliðarnir geta notað 200 milljónir í nýja leikmenn
Hull var spáð falli úr Championship deildinni í fyrra en liðinu tókst að smeygja sér afar óvænt í umspilssæti og vinna svo umspilið.
Félagið hefur mikinn pening til að nota í nýja leikmenn þökk sé sjónvarpsréttindum ensku úrvalsdeildarinnar og eru kantmaður og bakvörður efstir á óskalistanum.
Hull vill kaupa Leon Bailey úr herbúðum Aston Villa en Bailey er aðeins með eitt ár eftir af samningi og er einnig eftirsóttur af Trabzonspor og Celta Vigo.
Bailey, sem verður 29 ára í ágúst, átti mikið vonbrigðatímabil í fyrra bæði í ensku úrvalsdeildinni og á láni hjá Roma í ítalska boltanum. Talið er að Aston Villa vilji fá um 10 til 15 milljónir punda fyrir Bailey.
Hull hefur einnig áhuga á bakverðinum Matt Targett sem er samningslaus eftir dvalir hjá Newcastle og Aston Villa á síðustu árum.
Targett er þrítugur og fær tveggja ára samning hjá Hull, en hann á í heildina 164 úrvalsdeildarleiki að baki og kemur með mikilvæga reynslu inn í hópinn.