Fotbolti.net
21.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Framlengja á Akureyri og halda til Bandaríkjanna

Framlengja á Akureyri og halda til Bandaríkjanna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Bríet Jóhannsdóttir og Emelía Ósk Krüger eru búnar að skrifa undir nýja samninga við Þór/KA sem gilda í tvö og hálft ár, eða út keppnistímabilið 2028.
Þátttaka þeirra með aðalliðinu verður þó minni heldur en áður vegna þess að stöllurnar halda báðar út til Bandaríkjanna í háskólanám. Þær eru búnar að spila sína síðustu leiki fyrir Þór/KA á árinu en mæta ferskar til leiks á næsta ári.

Þær eru fæddar 2006 og munu nema saman við Tennessee Tech University. Þær hafa tekið þátt í langflestum leikjum Þórs/KA á leiktíðinni og eru mikilvægir hlekkir í leikmannahópnum.

Bríet er bakvörður að upplagi með 64 leiki að baki í Bestu deildinni og fjóra fyrir U19 landslið Íslands. Hún hefur nýlega verið að spila sem kantur í liði Akureyringa og er búin að skora tvö mörk í síðustu fimm leikjum í þeirri stöðu.

Emelía er miðjumaður sem á 43 leiki að baki fyrir Akureyringa í efstu deild kvenna. Hún er búin að skora eitt mark í átta deildarleikjum í sumar.

Kvaddi með marki - „Vildum gera betur fyrir fólkið okkar hérna á Akureyri"
TENGT EFNI

Kvaddi með marki - „Vildum gera betur fyrir fólkið okkar hérna á Akureyri"



Framlengja á Akureyri og halda til Bandaríkjanna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.