21.07.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Toppbarátta og undanúrslit

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru þrír leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag þar sem mikil spenna er bæði í Bestu deild kvenna og Mjólkurbikar karla.
Í Bestu deildinni eigast Valur og Breiðablik við í klassískum slag á sama tíma og topplið FH fær Stjörnuna í heimsókn.
Valur er óvænt í fallsæti á meðan Blikar eru í toppbaráttu við FH og þurfa bæði lið á sigri að halda. FH er með tveggja stiga forystu á toppnum og svo kemur Stjarnan í þriðja sæti, þremur stigum á eftir Blikum. Leikir kvöldsins gætu því reynst gífurlega mikilvægir.
Á sama tíma fer undanúrslitaleikur Mjólkurbikarsins fram, þegar Fylkir tekur á móti Aftureldingu í Árbænum. Hér er um áhugaverðan Lengjudeildarslag að ræða og mun sigurliðið mæta Breiðabliki í úrslitum á Laugardalsvelli.
Besta kvenna
19:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Mjólkurbikar karla
19:30 Fylkir-Afturelding (tekk VÖLLURINN)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 14 | +27 | 33 |
| 2 | Breiðablik | 14 | +25 | 33 |
| 3 | Stjarnan | 14 | +5 | 23 |
| 4 | ÍBV | 14 | -3 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 15 | -6 | 19 |
| 6 | Fram | 15 | -13 | 16 |
| 7 | Þór/KA | 14 | -5 | 15 |
| 8 | Þróttur R. | 14 | -5 | 15 |
| 9 | Valur | 14 | -12 | 13 |
| 10 | Víkingur R. | 14 | -13 | 11 |