21.08.03 - 00:00
Palermo til Betis. (Staðfest)




Martin Palermo framherji Villareal verður að öllum líkindum kynntur sem nýr leikmaður Real Betis seinna í dag. Gárungar telja Argentínumanninn vera síðasta leikmanninn sem gengur til liðs við Sevilla klúbbinn en þó er ekki loku fyrir það skotið að tveir aðrir komi á næstu dögum. Þeir leikmenn sem um ræðir eru framherjinn Alfonso sem er á sölulista hjá Barcelona og bakvörðurinn Athirson hjá Juventus.
Það efast enginn um hæfileika Martins en hins vegar er leikmaðurinn frægur fyrir að vera einstaklega óheppinn og eru tvö atvik sem verða að teljast góðar sannanir þess efnis. Fyrra atvikið kom í leik með Villareal þegar hann náði að skora ágætt mark en handarbraut sig svo við það að fagna markinu og var frá í hálft ár. Hið seinna gerðist hins vegar í með argentínska landsliðinu gegn Kólumbíu í Copa America þegar hann klúðraði hvorki meira né minna en þrem(!!!) vítaspyrnum.
