Það var vel mætt á völlinn er ÍR hafði betur gegn Leikni R. í minningarleik Hlyns Þórs Sigurðssonar sem lést, aðeins 18 ára gamall, fyrir áratugi síðan á æfingu hjá ÍR.
Leikurinn er kepptur á hverju ári en í ár eru liðin tíu ár frá andlátinu skyndilega.
„Vel mætt á völlinn, margir ungir spreyttu sig í báðum liðum og bæði lið fengu að leikslokum 200þúsund í ferðasjóð frá minngarsjóði Hlyns," segir í færslu frá ÍR á Twitter, en það voru ÍR-ingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Leiknum lauk með 1-0 sigri og gerði Andri Már Ágústsson eina mark leiksins.
Athugasemdir