21.11.26 - 19:52
Ívan Guðjón Baldursson
Ágúst lagði upp í sigri gegn Feyenoord - Arnór aftur á meiðslalistann

Mynd: Excelsior

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Excelsior
Hinn bráðefnilegi Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp í fræknum sigri Excelsior gegn stórveldi Feyenoord í efstu deild hollenska boltans í dag.
Excelsior heimsótti Feyenoord og lenti undir snemma leiks en Ágúst Orri svaraði skömmu síðar með að leggja jöfnunarmarkið upp.
Excelsior vann eftir spennandi fimm marka slag og fjarlægist fallbaráttuna með þessum dýrmæta sigri. Liðið var án sigurs í átta deildarleikjum í röð áður en farið var í heimsóknina til Rotterdam í dag. Úrslitin koma mjög á óvart í ljósi þess að stórveldi Feyenoord situr í þriðja sæti deildarinnar.
Willum Þór Willumsson kom þá inn af bekknum í stóru tapi NEC Nijmegen á heimavelli gegn toppliði PSV Eindhoven.
PSV komst í fjögurra marka forystu áður en Willum var skipt inn í fimmfaldri skiptingu á 70. mínútu og urðu lokatölur 1-4.
Nijmegen og Excelsior eru jöfn á stöðutöflunni með 14 stig eftir 13 umferðir.
Arnór Sigurðsson var þá í byrjunarliði Kalamata í grísku deildinni en fór meiddur af velli á 68. mínútu.
Kalamata tapaði naumlega á heimavelli gegn Grikklandsmeisturum AEK frá Aþenu og er liðið í neðri hluta deildarinnar með 12 stig eftir 11 umferðir.
Í öðrum leikjum dagsins voru Hilmir Rafn Mikaelsson og Viðar Ari Jónsson ónotaðir varamenn. Hilmir horfði á Sigma Olomuc tapa heimaleik gegn Slavia Prag í efstu deild í Tékklandi á meðan Viðar horfði á markalaust jafntefli hjá HamKam í norsku deildinni.
Tómas Bent Magnússon var þá ekki með vegna meiðsla er Hearts gerði sér lítið fyrir og skóp átta marka sigur á útivelli gegn Dundee FC. Kolbeinn Birgir Finnsson var fjarverandi úr liði Vålerenga vegna meiðsla og Róbert Frosti Þorkelsson úr liði GAIS af sömu ástæðum.
Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hóp hjá Südtirol á Ítalíu og að lokum var Benoný Breki Andrésson ekki með í öruggum sigri Stockport County sem trónir á toppinum í League One deildinni, C-deild enska deildapýramídans.
Feyenoord 2 - 3 Excelsior
Nijmegen 1 - 4 PSV Eindhoven
Kalamata 0 - 1 AEK
Sigma Olomuc 0 - 2 Slavia Prag
HamKam 0 - 0 Fredrikstad
Dundee 0 - 8 Hearts
Valerenga 1 - 2 Start
GAIS 3 - 1 Vasteras
Sudtirol 1 - 0 Cremonese
Cambridge 0 - 3 Stockport County