21.11.26 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Malen setti fernu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Parma 1 - 5 Roma
0-1 Donyell Malen ('39 )
1-1 Nesta Elphege ('54 )
1-2 Donyell Malen ('68 )
1-3 Rodrigo Mora ('71 )
1-4 Donyell Malen ('77 )
1-5 Donyell Malen ('90 )
0-1 Donyell Malen ('39 )
1-1 Nesta Elphege ('54 )
1-2 Donyell Malen ('68 )
1-3 Rodrigo Mora ('71 )
1-4 Donyell Malen ('77 )
1-5 Donyell Malen ('90 )
Parma og Roma áttust við í efstu deild á Ítalíu í dag og úr varð opinn og skemmtilegur leikur, eitthvað sem hefur einkennt yfirstandandi deildartímabil í Serie A.
Hollenska markavélin Donyell Malen fór rólega af stað en skoraði svo fyrsta mark leiksins á 39. mínútu eftir fyrirgjöf frá Emanuele Lulli, sem skrifast að stórum hluta á Nesta Elphege sem varðist hörmulega.
Rómverjar leiddu því í leikhlé en Elphege lét fyrirgefa sér með jöfnunarmarki eftir skyndisókn snemma í síðari hálfleik. Elphege fékk boltann á eigin vallarhelmingi og spretti alla leið að vítateig Roma áður en hann kláraði með góðu marki.
Bæði lið fengu góð færi til að taka forystuna en það var Malen sem skoraði næsta mark, í þetta skiptið eftir herfilegan varnarleik hjá Mariano Troilo.
Rodrigo Mora tvöfaldaði forystu gestanna skömmu síðar, áður en Malen fullkomnaði þrennuna á 77. mínútu eftir góða sendingu frá Wesley Franca, sem lagði aftur upp fyrir Malen á lokamínútunum.
Malen skoraði því fernu í stórsigri Roma sem situr í öðru sæti Serie A með 30 stig úr 12 umferðum, tveimur stigum á eftir toppliði Lazio.
Malen er þar með kominn með 12 mörk í 11 leikjum á deildartímabilinu,.