21.11.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle 2 - 2 Arsenal
0-1 Eberechi Eze ('33 )
1-1 Harvey Barnes ('49 )
2-1 Malick Thiaw ('62 )
2-2 Noni Madueke ('78 )
0-1 Eberechi Eze ('33 )
1-1 Harvey Barnes ('49 )
2-1 Malick Thiaw ('62 )
2-2 Noni Madueke ('78 )
Englandsmeistarar Arsenal heimsóttu Newcastle United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og voru talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik. Heimamenn í Newcastle sáu ekki til sólar og voru heppnir að vera bara einu marki undir þegar flautað var til leikhlés.
Eberechi Eze skoraði eina markið eftir laglega sendingu frá Kai Havertz og var útlitið ekki gott fyrir Newcastle.
Spilamennska heimamanna gjörbreyttist eftir leikhlé. Lærlingar Matthias Jaissle skiptu um gír og sköpuðu alls konar vandræði fyrir Englandsmeistarana sem virtust ekki eiga nein svör.
Harvey Barnes var fljótur að jafna metin eftir klaufaleg mistök Martin Ödegaard á 49. mínútu og komust heimamenn nokkrum sinnum nálægt því að taka forystuna áður en Malick Thiaw skoraði eftir hornspyrnu.
Það var mikill atgangur í vítateignum þar sem menn héldu og rifu í hvorn annan, en leikmenn Newcastle reyndust sterkari og skoruðu löglegt mark til að ná forystunni.
Noni Madueke tókst að svara fyrir gestina með mjög góðu einstaklingsframtaki í skyndisókn á 78. mínútu.
Newcastle var áfram sterkara liðið en tókst ekki að endurheimta forystuna. Arsenal var hættulegra liðið í 9 mínútna uppbótartíma en skapaði ekki mikið, svo lokatölur urðu 2-2.
Arsenal trónir áfram á toppi úrvalsdeildarinnar, með 28 stig eftir 11 umferðir - sex stigum meira heldur en Brighton sem situr í öðru sæti og á leik til góða gegn nýliðum Hull City á morgun.
Newcastle er í neðri hlutanum með 13 stig.