21.11.26 - 11:06
Brynjar Ingi Erluson
Betri fréttir af Olise en Kane

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski vængmaðurinn Michael Olise verður ekki lengi frá vegna meiðsla, en þetta staðfestir þýska félagið Bayern München.

TENGT EFNI
Kane meiddist illa á ökkla
Bæði Harry Kane og Olise þurftu að fara af velli snemma í 1-1 jafntefli Bayern gegn Ísaki Bergmann Jóhannessyni og félögum í Köln í gær.
Ljóst er að Kane verður frá keppni í nokkra mánuði eftir að hafa slitið liðband í ökkla, en Olise slapp mun betur.
Frakkinn er aðeins með mar á fæti og er búist við að hann snúi aftur á völlinn strax í næstu viku.
Það hefði verið gríðarlegt áfall fyrir Bayern að missa tvo af sínum afkastamestu leikmönnum í langan tíma, en Olise hefur komið að nítján mörkum í öllum keppnum á tímabilinu á meðan Kane hefur komið að tuttugu.
Bayern trónir á toppi þýsku deildarinnar með 22 stig, einu stigi meira en Borussia Dortmund sem á þó leik til góða.