21.11.26 - 10:51
Brynjar Ingi Erluson
Owono mætti á völlinn í fyrsta sinn eftir harmleikinn

Jesus Owono á leiknum í gær

Mynd: EPA

Jesus Owono á leiknum í gær

Mynd: EPA
Markvörðurinn Jesus Owono kom fram opinberlega í fyrsta sinn í gær síðan hann varð framherjanum Jesus de Miguel að bana í leik Andorra gegn Tenerife í byrjun mánaðarins.

TENGT EFNI
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
Owono fór harkalega út í De Miguel undir lok leiksins með þeim afleiðingum að hné hans lenti í brjóstkassa framherjans, sem fór í hjartastopp og lést á sjúkrahúsi nokkrum klukkustundum síðar.
Markvörðurinn hefur haldið sig frá sviðsljósinu síðan og átt erfitt með að meðtaka það sem gerðist. Fjölskylda hans, félagið og liðsfélagar hafa veitt honum mikinn stuðning á þessum erfiðu tímum, en Owono ákvað einnig að draga sig úr landsliðshópi Miðbaugs-Gíneu.
Owono var úrskurðaður í tólf leikja bann af spænska fótboltasambandinu, sem er þyngsta refsing sem hægt var að úrskurða í málinu. Fá fordæmi eru fyrir jafn hörmulegu atviki og enn er óvíst hvort markvörðurinn muni nokkurn tímann snúa aftur á völlinn.
Í gær steig hann þó aftur fram í sviðsljósið þegar hann mætti á leik Andorra gegn Leganes í B-deildinni, þar sem minningu De Miguel var haldið á lofti.
Owono sat í stúkunni og sást biðja til Guðs á meðan leikmenn minntust De Miguel. Myndskeið af þessari tilfinningaþrungnu stund má sjá hér fyrir neðan.

Jesús Owono, presente en el sentido homenaje a Jesús de Miguel en el FC Andorra vs CD Leganés. #LALIGAEASPORTS #LaCasaDelFútbol https://t.co/S3aNVVfMBy
— Movistar Plus Deportes (@MPlusDeportes) November 20, 2026