Fotbolti.net
21.11.26 - 10:46
Brynjar Ingi Erluson

De Zerbi: Ég mun fara inn á herbergin og rústa GTA ásamt öllu öðru

Roberto De Zerbi

Roberto De Zerbi

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham á Englandi, var spurður út í útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto 6 og hvort hann hefði áhyggjur af því að leikurinn gæti haft áhrif á æfingar og frammistöðu sinna manna.
Mbeumo gagnrýndur fyrir að spila GTA 6 á miðnætti
TENGT EFNI

Mbeumo gagnrýndur fyrir að spila GTA 6 á miðnætti

GTA 6 kom út á fimmtudag, en Grand Theft Auto er ein vinsælasta tölvuleikjasería allra tíma og eru þrettán ár liðin frá því að síðasti leikur kom út.

Eftirvæntingin hefur verið gríðarleg og hafa leikmenn um allan heim verið duglegir að spila leikinn. Stuðningsmenn Manchester United voru meðal annars margir ósáttir við Bryan Mbeumo, sem beið fram yfir miðnætti aðfaranótt fimmtudags til að geta spilað leikinn, aðeins nokkrum dögum fyrir stórleikinn gegn Liverpool.

De Zerbi hefur þó ekki miklar áhyggjur og segist vera með lausnina á hreinu ef leikmenn hans fara að eyða of miklum tíma í leikinn.

„Ég er ekki lögreglumaður eða faðir þeirra. Ég er þjálfari og í búningsklefanum er gott og þroskað fólk. Þannig þeir vita hvenær þeir eiga að slökkva á PlayStation og öðru, annars mun ég fara inn á herbergin þeirra og rústa GTA og öllu öðru,“ sagði De Zerbi í góðlátlegu gríni.

Tottenham tekur á móti Ipswich Town í Lundúnum klukkan 15:00 í dag. Tottenham er í 11. sæti deildarinnar með 12 stig, aðeins einu stigi á undan Ipswich sem situr í 14. sæti.
GTA 6 kom út á fimmtudag

GTA 6 kom út á fimmtudag

Canon

Mynd: Rockstar Games

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.