Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. janúar 2020 19:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úkraínskur varnarmaður á leið til Arsenal?
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Mykola Matvienko, varnarmanns Shakhtar Donetsk, hefur sagt að Arsenal sé í viðræðum við Shakhtar um kaup á varnarmanninum.

Yuriy Danchenko, umboðsmaður Matvieknko, sagði við úkraínska fjölmiðla að hann og hans menn hafi verið í sambandi við fulltrúa við Arsenal og hitt þá á fundum. Hann segir Arsenal hafa nú þegar sett sig í samband við Shakhtar og hann vonar að viðræður félaganna gangi upp.

Matvienko, sem hefur leikið 22 landsleiki fyrir Úkraínu, á átján mánuði eftir af samningi við Shakhtar.

Matvienko er 23 ára gamall örvfættur miðvörður sem getur leyst báðar bakvarðarstöðurnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner