Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. janúar 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Stórleikur á Old Trafford
Manchester United og Liverpool eigast við
Manchester United og Liverpool eigast við
Mynd: Getty Images
Enski boltinn heldur áfram að rúlla um helgina en þó er aðeins einn leikur í ensku úrvalsdeildinni á meðan fjórða umferð enska bikarsins fer fram. Manchester United mætir Liverpool á Old Trafford.

Fjórða umferðin hefst í kvöld er Chorley fær Wolves í heimsókn klukkan 19:45.

Á morgun er þá einn leikur í úrvalsdeildinni en Aston Villa og Newcastle á Villa Park. Hann átti upphaflega að fara fram þann 4. desember en var frestað vegna smits hjá Newcastle.

Þá eru átta leikir í enska bikarnum á morgun en Southampton spilar við Arsenal á St. Mary's-leikvanginum. West Ham og Doncaster Rovers eigast þá við og þá fá Jón Daði Böðvarsson og félagar í Millwall lið Bristol City í heimsókn.

Daníel Leó Grétarsson og hans menn í Blackpool spila við úrvalsdeildarlið Brighton. Cheltenham Ton fær þá verðugt verkefni gegn Manchester City.

Á sunnudaginn er öflug dagskrá. Chelsea og Luton eigast þá við á Stamford Bridge. Manchester United og Liverpool mætast þá í stærsta leik helgarinnar á Old Trafford en liðin gerðu markalaust jafntefli á Anfield á dögunum.

Gylfi Þór Sigurðsson verður þá væntanlega í hóp Everton sem spilar við Sheffield Wednesday. Jóhann Berg Guðmundsson og hans menn í Burnley mæta þá brattir í leikinn gegn Fulham eftir að hafa unnið Liverpool í deildinni í gær.

Föstudagur:

FA-bikarinn:
19:45 Chorley - Wolves

Laugardagur:

Úrvalsdeildin:
20:00 Aston Villa - Newcastle

FA-bikarinn:
12:15 Southampton - Arsenal
15:00 West Ham - Doncaster Rovers
15:00 Swansea - Nott. Forest
15:00 Millwall - Bristol City
15:00 Brighton - Blackpool
15:00 Barnsley - Norwich
15:00 Sheffield Utd - Plymouth
17:30 Cheltenham Town - Man City

Sunnudagur:
12:00 Chelsea - Luton
14:30 Brentford - Leicester
14:30 Fulham - Burnley
17:00 Man Utd - Liverpool
20:00 Everton - Sheff Wed
Athugasemdir
banner
banner
banner