Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. febrúar 2020 13:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp um áhuga Liverpool: Eins þegar ég hitti konuna mína
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, líkir augnablikinu þegar hann frétti af áhuga Liverpool við það þegar hann hitti eiginkonu sína í fyrsta skipti.

Klopp var ráðinn til Liverpool árið 2015 eftir að hafa verið í sjö ár þar áður með Borussia Dortmund. Hinn 52 ára gamli Klopp hefur náð stórkostlegum árangri með Liverpool; unnið Meistaradeildina og er á góðri leið með að stýra liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni.

„Það var mikill áhugi, en ég þurfti að fara í frí fyrst," sagði Klopp í viðtali við Sky Sports um það af hverju hann ákvað að taka við Liverpool.

„Ég heyrði frá umboðsmanni mínum að Liverpool hefði áhuga og þá hugsaði ég strax, 'guð minn góður'. Það var eins þegar ég hitti eiginkonu mína - ég sá hana og hugsaði strax að ég myndi giftast henni."

„Tilfinningin var rétt frá fyrsta augnablikinu."

Næsti leikur Liverpool er gegn West Ham á mánudag. Liverpool er með 22 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner