Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 19:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ákvörðun Arteta varð Arsenal að falli
Mynd: EPA
Man City vann Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins í kvöld en Nico O'Reilly skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri.

Kepa Arrizabalaga fékk tækifæri í markinu hjá Arsenal en var í markinu í keppninni á tímabilinu.

Hann gerði slæm mistök þegar honum tókst ekki að grípa boltann eftir fyrirgjöf frá Rayan Cherki og O'Reilly var fyrstur á boltann og kom City yfir.

„Ég veit að fólk mun segja að þetta sé tilfinninglegs eðlis og hann spilaði í fyrri umferðunum, en Kepa er ekki eins góður og Raya. Þess vegna er hann númer tvö," sagði Jamie Redknapp, sérfræðingur á Sky Sports.

„Af hverju ákveður maður að spila honum í stórum bikarúrslitaleik þegar maður er að reyna vinna þegar maður er ekki búinn að vinna titil í langan tíma. Hann verður að bera ábyrgð á því. Þetta eru gríðarleg mistök."

James Trafford fékk tækifærið í markinu hjá Man City en hann sýndi góða takta í upphafi leiks þegar hann varði í þrígang.

„Hann er ekki lélegur markvörður, hann er ekki eins góður og Raya og þetta kom í bakið á þeim. Þið getið sagt að Trafford sé ekki númer eitt heldur en hann varði mjög vel í þrígang og eftir það snerti hann varla boltann. Þetta var auðvelt fyrir hann. Ég er ekki vitur eftir á, ég sagði þetta fyrir leikinn," sagði Redknapp að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner