Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 11:48
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal ætlar að kaupa Wesley
Powerade
Mynd: Roma
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er á sínum stað á þessum síðasta fótboltasunnudegi fyrir landsleikjahlé. Það eru ýmis þekkt nöfn sem koma fyrir í pakka dagsins á borð við Eduardo Camavinga og Marus Rashford.


Arsenal er að skipta um gír í kapphlaupinu um brasilíska bakvörðinn Wesley Franca, 22, sem hefur verið að gera frábæra hluti hjá Roma. (Teamtalk)

Liverpool leiðir kapphlaupið um Eduardo Camavinga, 23 ára miðjumann Real Madrid. Stjórnendur Liverpool eru búnir að ræða við umboðsteymi Camavinga í tvígang en Chelsea hefur einnig áhuga á leikmanninum. (Caught Offside)

Hansi Flick segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir kantmanninn Marcus Rashford sem er hjá Barcelona á láni frá Manchester United. Börsungar geta fest kaup á Rashford fyrir um 30 milljónir evra og eru taldar miklar líkur á því að Spánarmeistararnir nýti sér kaupákvæðið sem fylgir með lánssamningnum. (Manchester Evening News)

Arsenal þarf að selja leikmenn í sumar til að standast fjármálareglur ensku deildarinnar og Meistaradeildarinnar. Aðeins nokkrir leikmenn liðsins eru taldir vera ósnertanlegir. (Telegraph)

Raphinha, 29 ára brasilískur kantmaður, hefur útilokað að yfirgefa Barcelona þrátt fyrir mikinn áhuga frá Sádi-Arabíu. (Sport)

Bruno Guimaraes, 28 ára miðjumaður Newcastle, er mjög ánægður hjá félaginu þrátt fyrir sterka orðróma um áhuga frá stórliðum víða um Evrópu. (Newcastle Chronicle)

Ricardo Pepi er búinn í læknisskoðun hjá Fulham en félagaskiptin eru í hættu vegna þess að félögin hafa ekki fundið samkomulag um meiðslatryggingu fyrir leikmanninn. (Fabrizio Romano)

Enginn leikmaður Chelsea hefur beðið um að vera seldur frá félaginu næsta sumar þrátt fyrir slakt gengi innan vallar. (Daily Mail)

Barcelona og Real Madrid hafa áhuga á Erling Haaland, 25, en Manchester City ætlar ekki að selja. (Football Insider)

Juventus er að íhuga að bjóða Þjóðverjanum Antonio Rüdiger samning. Rüdiger er 33 ára og rennur samningur hans við Real Madrid út í sumar. (Tuttosport)

Atlético Madrid er búið að leggja fram tilboð í brasilíska miðjumanninn Éderson, 26, hjá Atalanta. Tilboðið hljóðar upp á 40 milljónir evra í heildina og yrði Éderson fjórði leikmaðurinn sem Atlético fær til sín úr röðum Atalanta á einu ári. (Football Italia)
Athugasemdir
banner
banner