Titilbaráttulið ensku úrvalsdeildarinnar mætast í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley í dag og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Mikel Arteta þjálfari Arsenal gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Bayer Leverkusen að velli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku.
Kepa Arrizabalaga tekur sér stöðu á milli stanganna í stað David Raya og kemur Kai Havertz inn á miðjuna fyrir Eberechi Eze sem er að glíma við meiðsli. Martin Ödegaard, Mikel Merino og Jurriën Timber eru einnig utan hóps vegna meiðsla.
Pep Guardiola gerir fjórar breytingar á liðinu sem tapaði á heimavelli gegn Real Madrid í miðri viku. James Trafford fer í markið og koma Nathan Aké og Nico O'Reilly inn í varnarlínuna.
Rúben Dias og Josko Gvardiol eru báðir að glíma við meiðsli og er Marc Guéhi ólöglegur í bikarnum eftir að hafa spilað fyrir Crystal Palace. Því fær Aké tækifæri í hjarta varnarinnar.
Bernardo Silva heldur byrjunarliðssætinu við hlið Rodri á miðjunni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Real og kemur Antoine Semenyo inn í sóknarlínuna fyrir Tijjani Reijnders sem sest á bekkinn.
Arsenal: Kepa, White, Saliba, Gabriel, Hincapie, Zubimendi, Rice, Havertz, Saka, Trossard, Gyokeres.
Varamenn: Raya, Mosquera, Jesus, Martinelli, Norgaard, Madueke, Calafiori, Lewis-Skelly, Dowman.
Man City: Trafford, Nunes, Khusanov, Ake, O’Reilly, Rodri, Silva, Semenyo, Cherki, Doku, Haaland.
Varamenn: Donnarumma, Reijnders, Stones, Marmoush, Kovacic, Nico, Ait-Nouri, Savinho, Foden.
Athugasemdir

