Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 12:58
Ívan Guðjón Baldursson
Duracell: Chelsea hleypur alltaf minna en andstæðingarnir
Duracell
Meðalaldur byrjunarliðs Chelsea á úrvalsdeildartímabilinu er rétt yfir 23 ár.
Meðalaldur byrjunarliðs Chelsea á úrvalsdeildartímabilinu er rétt yfir 23 ár.
Mynd: EPA
Alan Shearer, goðsögn í ensku úrvalsdeildinni og fótboltasérfræðingur hjá BBC, greindi frá magnaðri tölfræði sem starfsmenn fundu eftir 3-0 tap Chelsea gegn Everton í gær.

Chelsea hljóp talsvert minna heldur en Everton í 3-0 tapi og voru hlaupatölur liðsins skoðaðar í kjölfarið. Niðurstaðan er sú að Chelsea hefur aldrei hlaupið meira heldur en andstæðingarnir sínir á yfirstandandi tímabili í úrvalsdeildinni.

Það er ótrúleg tölfræði í ljósi þess að liðið er búið að spila 31 leik og er í baráttu um meistaradeildarsæti.

„Chelsea hefur hlaupið minna en andstæðingarnir sínir í hverjum einasta úrvalsdeildarleik á tímabilinu, bæði heima og úti. Við trúðum þessu ekki svo við fórum tvisvar, þrisvar sinnum yfir tölurnar en þetta er staðreynd. Hlaupatölurnar tala sínu máli," sögðu Shearer og félagar í útsendingu BBC.

Wayne Rooney var einnig í settinu og talaði um reynsluleysi Chelsea liðsins þar sem meðalaldur byrjunarliðsins er sá lægsti í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner