Fotbolti.net
22.03.26 - 13:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Sunderland vann í Newcastle

England: Sunderland vann í Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Newcastle 1 - 2 Sunderland
1-0 Anthony Gordon ('10 )
1-1 Chemsdine Talbi ('57 )
1-2 Brian Brobbey ('90)
Newcastle United tók á móti Sunderland í hatrömmum nágrannaslag í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Úr varð hörkuslagur þar sem Newcastle byrjaði betur og náði forystunni á tíundu mínútu þegar Anthony Gordon nýtti sér skelfileg mistök hjá Luke O'Nien í varnarlínu Sunderland.

O'Nien gaf lélega sendingu undir pressu og vann Nick Woltemade boltann. Boltinn barst til Gordon sem nýtti tækifærið og skoraði með góðu skoti.

Newcastle var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Sunderland fékk einnig sín færi. Hvorugu liði tókst þó að bæta marki við leikinn svo staðan var 1-0 í leikhlé.

Í síðari hálfleik voru gestirnir frá Sunderland sterkari og gerði Chemsdine Talbi jöfnunarmark eftir hornspyrnu á 57. mínútu. Newcastle mistókst að hreinsa boltann úr vítateignum og enduðu gestirnir á að eiga nokkrar tilraunir áður en þeir komu boltanum loks í netið.

Sunderland var áfram sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum og náði forystunni með marki frá Brian Brobbey á lokamínútunum. Brobbey var skilinn eftir einn og óvaldaður tvo metra frá marklínunni. Ramsdale varði fyrri marktilraunina en Brobbey skoraði úr frákastinu.

Newcastle reyndi að sækja jöfnunarmark í löngum uppbótartíma en skapaði ekki mikla hættu, svo lokatölur urðu 1-2 fyrir Sunderland.

Þetta tap er skellur fyrir evrópuvonir Newcastle sem er núna fyrir neðan Sunderland á stöðutöflunni. Nýliðar Sunderland eru aðeins þremur stigum frá óvæntri evrópubaráttu.
Régis Le Bris er að vinna magnað starf hjá Sunderland.

Régis Le Bris er að vinna magnað starf hjá Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.