Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: O'Reilly tryggði Man City titilinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal 0 - 2 Manchester City
0-1 Nico OReilly ('60 )
0-2 Nico OReilly ('64 )

Manchester City varð enskur deildabikarmeistari eftir sigur á Arsenal í úrslitaleik á Wembley í dag. Arsenal hóf leikinn betur en James Trafford varði frábærlega í þrígang frá Kai Havertz og Bukayo Saka snemma leiks.

Annars var fyrri hálfleikurinn nokkuð rólegur og það var enn markalaust þegar liðin gengu inn til búningsherbergja í hálfleik.

Kepa Arrizabalaga fór langt út úr teignum snemma í seinni hálfleik og braut á Jeremy Doku og fékk gult spjald að launum. Pep Guardiola var ekki ánægður með að Peter Banks dómari hafði ekki leyft leiknum að halda áfram og ræddi lengi við fjórða dómarann.

Hins vegar náði Man City forystunni stuttu síðar þegar Rayan Cherki átti fyrirgjöf og Kepa náði ekki að handsama boltann og hann barst til Nico O'Reilly sem skallaði boltann í netið.

Aðeins fjórum mínútum síðar bætti O'Reilly við öðru marki þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Matheus Nunes.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var Arsenal nálægt því að minnka muninn en boltinn hafnaði í stönginni. Undir lokin átti síðan Gabriel Jesus tilraun en boltinn fór í slána.

Nær komust Arsenal menn ekki og Manchester City fagnaði sigrinum í deildabikarnum þetta árið.
Athugasemdir
banner
banner