Fotbolti.net
22.03.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eze og Saliba missa af landsleikjunum

Eze og Saliba missa af landsleikjunum
Canon

Mynd: EPA

Eberechi Eze var ekki með Arsenal þegar liðið tapaði gegn Man City 2-0 í úrslitum enska deildabikarsins í dag vegna meiðsla.

Mikel Arteta staðfesti eftir leikinn að hann væri að kljást við meiðsli á kálfa. Hann mun fara í frekari rannsókir í vikunni til að sjá hversu alverleg meiðslin eru.
Það er ljóst að hann mun ekki geta spilað með enska landsliðinu í æfingaleikjum gegn Úrúgvæ og Japan seinna í mánuðinum. Harvey Barnes, leikmaður Newcastle, hefur verið kallaður í hópinn í hans stað.

William Saliba spilaði allan leikinn gegn Man City en hann meiddist á ökkla og getur ekki verið með franska landsliðinu í æfingaleikjum gegn Brasilíu og Kólumbíu. Maxence Lacroix, leikmaður Crystal Palace, hefur verið kallaður í hópinn í hans stað. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er í A-landsliðshópnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.