Pep Guardiola var að vonum í skýjunum eftir að Man City vann Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins í dag.
Man City er níu stigum á eftir Arsenal í úrvalsdeildinni en á leik til góða. Guardiola segir að það hafi haft mikla þýðingu að vinna Arsenal.
Man City er níu stigum á eftir Arsenal í úrvalsdeildinni en á leik til góða. Guardiola segir að það hafi haft mikla þýðingu að vinna Arsenal.
„Þetta hefur mikla þýðingu, það er alltaf erfitt að vinna titla. Ásamt Bayern og kannski Barcelona þá mættum við besta liði Evrópu, þeir kæfðu okkur fyrstu 15 mínúturnar en eftir það byrjuðum við að vinna aðeins fleiri seinni bolta," sagði Guardiola.
„Semenyo var mjög góður í fyrri hálfleik, Doku var góður í seinni hálfleik og við fundum Rodri og Siilva í stöðunum sem við þurftum. Við unnum frábæran sigur. Deildabikarinn er ekki úrvalsdeildin eða Meistaradeildin en sigur gegn þessu liði gerir þetta að sérstökum titli."
Athugasemdir



