Heimild: RMCSport
Habib Beye, stjóri Marseille, var allt annað en sáttur með Hákon Arnar Haraldsson eftir tap Marseille gegn Lille í frönsku deildinni í kvöld.
Mason Greenwood þurfti að fara af velli eftir að Calvin Verdonk braut harkalega á honum. Greenwood stóð upp og hrinti Verdonk, Hákon bakkaði liðsfélaga sinn upp og kom af fullum karfti og hrinti Greenwood harkalega í bakið.

„Þetta var stjórnlaust, árásargjarnt og ofbeldisfullt hjá Hákoni,“ sagði Beye.
„Jafnvel þótt hægt sé að færa rök fyrir því að brot Verdonk hafi ekki komið í veg fyrir að hann skoraði mark, þá var áhrifin samt sem áður ofbeldisfull þar sem hann meiddist. Svo réðst Hákon á hann að aftan. Ef það þarf að kýla til að fá rautt spjald, þá er það fínt en það þarf að refsa fyrir ofbeldi. Þeir dæmdu það sem gult spjald. En við erum með leikmann sem er alvarlega meiddur og það breytti leik okkar.“
Lille er í 5. sæti með 47 stig, tveimur stigum á eftir Marseille sem er í 3. sæti.
Sjáðu atvikið hér fyrir neðan.
Greenwood gets bodychecked by Haraldsson during OM - LOSC
by
u/TheRedDogue in
soccer
Athugasemdir