Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 10:45
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Arsenal og City í úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Stórleikur dagsins er úrslitaleikur deildabikarsins milli Arsenal og Manchester City á Wembley.

Hvorki Arsenal né Man City höfðu komist í úrslitaleikinn síðan 2021, þegar City vann keppnina fjórða árið í röð.

Þetta er í annað sinn sem liðin mætast í úrslitaleiknum eftir að City hafði betur 2018. City hefur unnið keppnina átta sinnum frá upphafi en Arsenal aðeins tvisvar.

Til gamans má geta að þetta verður í fyrsta sinn í sögu deildabikarsins sem toppliðin tvö úr ensku úrvalsdeildinni mætast í úrslitaleiknum.

Þetta er í annað sinn sem Arsenal og City mætast á tímabilinu eftir 1-1 jafntefli á Emirates leikvanginum í september.

Bæði lið hafa notuð varamarkverði sína í keppninni og munu halda því áfram; Kepa Arrizabalaga verður í marki Arsenal og James Trafford í rammanum hjá City.

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal var tæpur fyrir leikinn en hann hefur ekki spilað síðan í febrúar. Hjá City er Josko Gvardiol enn fjarri góðu gamni.

Líklegt byrjunarlið Arsenal: Kepa; Timber, Saliba, Gabriel, Hincapié; Zubimendi, Rice; Saka, Eze, Trossard; Gyökeres.

Líklegt byrjunarlið Man City: Trafford; Nunes, Dias, Guéhi, Aït-Nouri; Rodri, O’Reilly; Semenyo, Silva, Doku; Haaland.
Athugasemdir
banner
banner