Ljóst er að portúgalski miðvörðurinn Rúben Dias verður ekki með Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í dag.
Dias er að glíma við meiðsli og nær því ekki leiknum. Josko Gvardiol er einnig að glíma við meiðsli og verður Marc Guéhi heldur ekki með útaf því að hann er búinn að spila fyrir annað félag í bikarnum.
Því má búast við að Abdukodir Khusanov byrji í hjarta varnarinnar en óljóst er hvort Nathan Aké, John Stones eða Max Alleyne byrji við hlið hans.
Leikurinn hefst klukkan 16:30 og því styttist í formlega tilkynningu um byrjunarlið.
Í liði Arsenal er Eberechi Eze tæpur fyrir stórleikinn. Martin Ödegaard og Jurriën Timber eru einnig tæpir og þá er Mikel Merino fjarverandi vegna meiðsla.
Kai Havertz gæti því byrjað á miðjunni ásamt Declan Rice og Martín Zubimendi.
Athugasemdir


