Fotbolti.net
22.03.26 - 23:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tudor fékk hræðilegar fréttir strax eftir leik

Tudor fékk hræðilegar fréttir strax eftir leik
Canon

Mynd: EPA

Tottenham tapaði fjórða deildarleiknum undir stjórn Igor Tudor þegar liðið steinlá 3-0 gegn Nottingham Forest á heimavelli í dag.

Tudor hefur átt erfitt uppdráttar en liðið féll úr leik í Meistaradeildinni á dögunum þrátt fyrir 3-2 sigur gegn Atletico en liðið steinlá 5-2 i fyrri leiknum. Eina stigið í deildinni kom gegn Liverpool í síðustu umferð.
Tudor ræddi ekki við fjölmiðla eftir leikinn. Hann fékk þær sorglegu fréttir strax eftir leikinn að fjölskyldumeðlimur hans væri látinn.

„Persónuleg mál, fjölskyldumál og ég stiig inn í þar sem þetta er ekki rétti tíminn fyrir hann að tala," sagði Bruno Saltor, aðstoðarþjálfari Tottenham, sem ræddi við fjölmiðla í fjarveru Tudor.

„Öll mistök eru okkur í óhag, öll smáatriði líka og það hefur áhrif á leikmennina. Maaður sér hversu mikið þeir berjast. Við erum í erfiðri stöðu og það vita það allir," sagði Saltor enn ferkar.

Tottenham er í 17. sæti aðeins stigi frá fallsætii þegar sjö umferðir eru eftir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.