Myndband af Igor Tudor, bráðabirgðaþjálfara Tottenham þar sem hann kemur aftan að Alan Dixon á hliðarlínunni í leik Tottenham gegn Liverpool og potar í öxlina á honum, varð mjög vinsælt á internetinu.
Netverjar héldu að Tudor hafði farið mannavillt í myndbandinu vegna þess að hann leit út fyrir að vera hissa þegar Dixon snéri sér við, en hann er sköllóttur alveg eins og Arne Slot þjálfari Liverpool.
„Það sem gerðist er að sonur minn, sem er 20 ára gamall, sagði við mig að í Króatíu væru allir að hlæja með mér útaf því að ég gerði þessi mistök. Ég spurði hann: 'hvaða mistök?'" sagði Tudor á fréttamannafundi í gær.
„Ég spurði þá son minn hvort hann vissi hver maðurinn í myndbandinu væri og hann sagði nei. Þetta er Alan Dixon, ég er oft með honum í marga tíma á dag á æfingasvæðinu.
„Ég kom út og sá hann standa fyrir framan bekkinn. Hvaða annar þjálfari getur mögulega verið standandi á mínu tæknilega svæði? Ég sá hann standa þarna og ákvað að gera smá grín í honum með að pota í öxlina á honum öðru megin og birtast svo hinu megin.
„Þegar hann snéri sér við þá var ég ekki hissa, ég var hlæjandi. Ég skil að menn geri þessi mistök í Króatíu þar sem enginn veit hver Alan Dixon er, en hérna á Englandi finnst mér skrýtið að fólk haldi að ég þekki ekki manninn sem ég vinn með í tíu klukkustundir á hverjum degi.
„Við erum byrjaðir að gera grín að þessu öllu saman. Nú kalla ég hann Arne, ekki Alan. Það er gaman af þessu."
Athugasemdir


