Tveir leikmenn Víkings eru tæpir vegna meiðsla fyrir leikinn gegn Stjörnunni á morgun. Það eru þeir Oliver Ekroth og Stígur Diljan Þórðarson.
Fyrirliðinn Ekroth meiddist í leiknum gegn KA en Stígur Diljan missti af leiknum fyrir norðan vegna meiðsla.
Fyrirliðinn Ekroth meiddist í leiknum gegn KA en Stígur Diljan missti af leiknum fyrir norðan vegna meiðsla.
„Þeir eru að fara hitta lækni í dag, eru að ströggla með tærnar á sér. Það er bara tékk til að vera vissir um að þetta sé ekkert alvarlegt. Ég á ekki von á því að þetta sé alvarlegt, en það er betra að hafa varann á og gott fyrir leikmenn að fá að vita hvort þeir geti spilað í gegnum verkinn," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net.
Eru þetta meiðsli sem menn óttast að geti leitt til hásinavandræða eða eitthvað svoleiðis?
„Nei, svo sem ekki svoleiðis. En bara að komast að því hvort menn séu að djöflast á einhverri skemmd og geri illt verra með því að þjösnast áfram. Eða hvort þetta séu bólgur sem hægt er að bíta á jaxlinn með. Ef það er einhver skemmd þá lengist bataferlið."
Af hverju eru menn að glíma við meiðsli á tám?
„Það er af því að dómararnir leyfa andstæðingunum að taka svo hart á okkur," segir Sölvi á mjög léttum nótum.
„Nei, þetta er bara tilviljunarkennt, bara tvö spörk sem þeir fengu í tána."
„Hvort að annar hvor geti verið með á morgun verður að koma í ljós, við þurfum að sjá til hvað kemur út úr myndatökunni og hvað læknirinn segir. Fyrir utan svo Daða Berg eru allir klárir í slaginn," segir Sölvi.
Leikurinn á móti Stjörnunni hefst klukkan 19:15 annað kvöld og fer fram á Víkingsvelli. Víkingur er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina sína en Stjarnan er með sex stig.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 4 | +4 | 6 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Fram | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 4. Víkingur R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 5. Breiðablik | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 - 1 | +1 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 9. ÍA | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. ÍBV | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 11. Keflavík | 2 | 0 | 0 | 2 | 3 - 6 | -3 | 0 |
| 12. KA | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 - 5 | -3 | 0 |


