West Brom er nú í leit að nýjum stjóra sem mun stýra liðinu í Championship deildinni á næsta tímabili.
Darren Moore var rekinn frá West Brom í mars þrátt fyrir ágætis gengi, Jimmy Shan tók við liðinu til bráðabirgða og stýrði því út tímabilið. West Brom komst í umspilið um laust sæti í úrvalsdeildinni en tapaði þar gegn Aston Villa.
Sky Sports greindi frá því í dag að West Brom ætli sér að hafa samband við Þjóðverjann Bruno Labbadia og ræða við hann um að taka við liðinu, Labbadia hættir sem stjóri Wolfsburg núna eftir tímabilið í Þýskalandi.
Hamburg í Þýskalandi er einnig sagt vilja ráða Labbadia en hann er sagður vilja breyta til eftir 15 ár í þýska boltanum og færa sig yfir í enska boltann, launakröfur hans gætu þó reynst West Brom erfiðar.
Athugasemdir