Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á morgun verður uppgjör á áttundu umferð Bestu deildarinnar aðalmálið. Þátturinn er milli 12 og 14.
Elvar Geir og Valur Gunnars verða í hljóðveri og sérstakir gestasérfræðingar frá Akranesi mæta; Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson.
Elvar Geir og Valur Gunnars verða í hljóðveri og sérstakir gestasérfræðingar frá Akranesi mæta; Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson.
Kári Snorrason og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson gefa skýrslur úr tveimur leikjum.
Einnig verður fjallað um Lengjudeildina í þættinum og Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna



