22.06.12 - 18:15
Hafliði Breiðfjörð
BÍ/Bolungarvík fær tvo danska leikmenn (Staðfest)

Mynd: Baldur Smári Ólafsson

Mynd: Baldur Smári Ólafsson
BÍ/Bolungarvík staðfesti á vef sínum í kvöld að danirnir Alexander Jackson Møller og Mark Tubæk hafi gengið til liðs við félagið og muni spila með þeim í 1. deildinni á síðari hluta sumarsins.
Leikmennirnir koma hingað til lands 1. júlí næstkomandi og verða löglegir þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.

Alexander Jackson Møller er 22 ára varnarmaður og spilaði síðast með Hobro IK og var einnig á mála hjá AGF þar sem hann kemur upp úr unglingastarfi félagsins. Hann á að baki landsleiki með öllum yngri landsliðum Dana.
Mark Tubæk er 24 ára miðjumaður sem var síðast á mála hjá Blokhus FC í dönsku fyrstu deildinni. Hann kemur upprunalega úr unglingastarfi OB í Óðinsvéum. Fyrir hjá liðinu er einn Dani, Dennis Nielsen, sem hefur staðið sig með mikilli prýði í hjarta varnarinnar.
BÍ/Bolungarvík er í 10. og þriðja neðsta sæti 1. deildar karla eftir sex leiki með aðeins fjögur stig. Liðið á heimaleik gegn Haukum á morgun klukkan 14:00.

Heimild: Vefur BÍ/Bolungarvíkur