22.06.12 - 19:23
Magnús Már Einarsson
Shinji Kagawa til Manchester United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur gengið frá kaupu á Shinji Kagawa en hann kemur til félagsins frá Borussia Dortmund fyrir óuppgefna upphæð.
Búið var að ganga frá flestum formsatriðum fyrr í mánuðinum en Kagawa stóðst læknisskoðun í Manchester í dag og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samning við United.

,,Shinji er spennandi ungur miðjumaður með góða tækni, yfirsýn og auga fyrir marki. Ég er ánægður með að hann hafi valið að koma til United,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.
,,Ég tel að hann muni hafa fljótlega áhrif á liðið því hann hentar leikstíl United. Okkur hlakkar öllum til að vinna með honum.\"
Kagawa er 23 ára gamll Japani en hann skoraði 17 mörk og lagði upp 13 þegar liðið sigraði bæði deild og bikar á síðasta tímabili.

Heimild: BBC