Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele er á leið í aðgerð á hné en þetta staðfestir spænska félagið Barcelona í dag.
Dembele kom inná sem varamaður í 1-1 jafnteflinu gegn Ungverjalandi en hann þurfti að fara af velli aðeins hálftíma síðar vegna meiðsla.
Hann meiddist á hné og dró sig úr franska landsliðshópnum í kjölfarið og er nú á leið í aðgerð.
Barcelona var ekki með tímaramma á því hvenær Dembele snýr aftur á völlinn en Catalunya Radio segir að hann verði frá í að minnsta kosti þrjá mánuði.
Dembele skoraði 11 mörk í 44 leikjum fyrir Barcelona á síðustu leiktíð en hann hafði komið inná sem varamaður í fyrstu tveimur leikjum Frakka á Evrópumótinu áður en hann meiddist.
Athugasemdir