Íslendingaliðin í Noregi náðu engum sérstökum árangri í tveimur efstu deildunum í dag.
Brynjar Ingi Bjarnason og VIðar Ari Jónsson voru báðir í byrjunarliði Ham/Kam sem tapaði fyrir Tromsö, 3-1, á heimavelli.
Ham/Kam hafði unnið tvo síðustu deildarleiki sína í röð en slakur fimm mínútna kafli um miðjan fyrri hálfleikinn gerði liðinu erfitt fyrir og kláruðu gestirnir síðan dæmið snemma í þeim síðari.
Ham/Kam er í 13. sæti með 11 stig.
Ísak Snær Þorvaldsson og félagar hans í Rosenborg töpuðu fyrir Kristiansund, 4-1. Ísak byrjaði á bekknum en kom inn á þegar tæpur hálftími var eftir. Rosenborg er í 3. sæti með 22 stig.
Sveinn Aron Guðjohnsen kom inná á 85. mínútu er Sarpsborg gerði 1-1 jafntefli við Bryna. Sarpsborg er í 9. sæti með 14 stig.
Óskar Borgþórsson sat allan tímann á bekknum í 2-1 tapi Sogndal gegn Lyn í B-deildinni. Sogndal er í 4. sæti með 19 stig.
Daníela Dögg Guðnadóttir byrjaði hjá Álasundi sem gerði 2-2 jafntefli við Molde í norsku B-deildinni. Marie Jóhannsdóttir var á bekknum hjá Molde en kom inn á þegar lítið var eftir. Álasund er á toppnum með 23 stig en Molde í 3. sæti með 21 stig.
Athugasemdir